Fotbolti.net
02.11.26 - 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ten Hag: United getur fallið

Ten Hag: United getur fallið
Canon

Mynd: EPA

Erik ten Hag, fyrrum stjóri Manchester United, er í miklum ham þessa dagana og tjáir sig mikið um sitt fyrrum félag. Hann segir að það sé klárlega möguleiki á því að liðið falli úr úrvalsdeildinni.

United er einungis markatölunni frá fallsæti og hefur einungis unnið tvo leiki í öllum keppnum á tímabilinu. Eini deildarsigurinn kom gegn Ipswich 30. ágúst.
Sigurþurrðin hjá Man Utd sú lengsta í 38 ár
TENGT EFNI

Sigurþurrðin hjá Man Utd sú lengsta í 38 ár

Ten Hag vann bæði deildabikarinn og enska bikarinn á tveimur og hálfu ári hjá United. Hann varar nú við að fall sé möguleiki, fyrsta fallið síðan 1974. Ten Hag var látinn fara frá United í nóvember 2024 og við tók Ruben Amorim sem rekinn var í janúar á þessu ári. Nú stýrir Michael Carrick liðinu.

„Í úrvalsdeildinni er það klárlega möguleiki, því öll liðinu eru sterk," segir Ten Hag við ESPN í Hollandi.

„Allir hóparnir eru sterkir, allir stjórarnir góðir. Og ef maður lendir einu sinni á rangri hlið og festist í þessum vítahring, þá getur það orðið mjög erfitt," segir sá hollenski.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.