Fotbolti.net
02.12.19 - 21:40
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland: Mainz lagði Frankfurt

Adam Szalai nokkrum sekúndum eftir sigurmarkið.

Adam Szalai nokkrum sekúndum eftir sigurmarkið.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Mainz 2 - 1 Eintracht Frankfurt</b>
0-1 Martin Hinteregger ('34)
1-1 Karim Onisiwo ('50)
2-1 Adam Szalai ('69)
<u>Rautt spjald:</u> Dominik Kohr, Frankfurt ('44)
Mainz tók á móti Eintracht Frankfurt í síðasta leik helgarinnar í þýska boltanum.

Fresta þurfti upphafsflautinu vegna mótmæla stuðningsmanna sem köstuðu blysum á völlinn. Þeir eru ósáttir með að spila þurfi á mánudagskvöldi, ákvörðun sem var tekin til að aðstoða lið sem keppa á fimmtudagskvöldum í Evrópudeildinni og fá hærri sjónvarpstekjur. Frankfurt lagði Arsenal að velli síðasta fimmtudag.

Gestirnir frá Frankfurt áttu góðan fyrri hálfleik og leiddu 0-1 þökk sé marki frá Martin Hinteregger. Liðsfélagi hans Dominik Kohr fékk beint rautt spjald fyrir leikhlé þegar hann braut af sér sem aftasti varnarmaður.

Karim Onisiwo jafnaði í upphafi síðari hálfleiks en hann var afar heppinn að boltinn hafnaði í netinu. Hann fékk skot frá Jeremiah St. Juste í sig og breytti knötturinn um stefnu. Onisiwo lagði svo upp sigurmarkið fyrir Adam Szalai á 69. mínútu.

Þetta var annar sigur Mainz í röð og er liðið með 15 stig eftir 13 umferðir. Þriðji tapleikur Frankfurt í röð í deildinni staðreynd og er liðið um miðja deild, með 17 stig.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern6+1714
2Dortmund6+714
3Freiburg6+913
4Leverkusen6+713
5Mainz6+410
6Elversberg6+110
7RB Leipzig6+59
8Werder609
9Hamburger6-99
10Augsburg6+48
11Frankfurt6-68
12Köln6-37
13Stuttgart6-26
14Hoffenheim6-36
15Schalke 046-35
16Paderborn6-45
17Union Berlin6-125
18Gladbach6-120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.