Fotbolti.net
19.10.26 - 08:15
Elvar Geir Magnússon

Ramos gæti snúið aftur í La Liga - Risastór verðmiði á Scott

Sergio Ramos gæti farið aftur til Madrídar.

Sergio Ramos gæti farið aftur til Madrídar.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Góð helgi að baki með nóg af fótbolta og það er önnur Meistaradeildarvika komin í gang. Hér er slúðurpakki dagsins og þar kennir ýmissa grasa.
Spænska goðsögnin Sergio Ramos (40) gæti óvænt verið á leið aftur í La Liga en hann er í viðræðum við Madrídarfélagið Getafe. Þessi fyrrum varnarmaður Real Madrid var síðast hjá Monterrey í Mexíkó en er nú án félags. (Sport)

Bournemouth gæti farið fram á meira en 100 milljónir punda fyrir enska miðjumanninn Alex Scott (23) en Chelsea og Liverpool hafa sýnt honum áhuga. (Football Insider)

Þjóðverjinn Florian Wirtz (23) hefur engan hug á að yfirgefa Liverpool þrátt fyrir fregnir um mögulegan áhuga frá Chelsea, liði sem hans fyrrum þjálfari hjá Bayer Leverkusen, Xabi Alonso, stýrir. (CaughtOffside)

Tottenham fylgist áfram með þýska sóknarmanninum Younes Ebnoutalib (23) hjá Eintracht Frankfurt. (TeamTalk)

Newcastle United hefur fylgst með David Otorbi (19), miðjumanni Valencia. (Marca)

Tottenham hefur áhuga á að fá til sín japanska miðjumanninn Yuito Suzuki (24) frá Freiburg en Roberto De Zerbi hyggst styrkja hóp sinn. (Fussball News)

Barcelona fylgist með varnarmanni Benfica, Daniel Banjaqui (18), en gæti mætt samkeppni frá úrvalsdeildarfélögunum Newcastle og Manchester United. (Ekrem Konur)

Barcelona fær samkeppni frá Real Madrid um varnarmann Stuttgart, Finn Jeltsch (20), en Liverpool hefur einnig sýnt þessum unga Þjóðverja áhuga. (Sport)

Arsenal og Tottenham fylgjast með Xavi Espart (19) hjá Barcelona ??en há riftunarákvæðisupphæð í samningi spænska varnarmannsins gæti reynst hindrun. (CaughtOffside)
Alex Scott í leik með enska landsliðinu.

Alex Scott í leik með enska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Florian Wirtz.

Florian Wirtz.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.