Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
banner
   þri 03. mars 2026 20:57
Snæbjört Pálsdóttir
Einkunnir Íslands - Heimsmeistararnir of stór biti
PEI
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA

Ísland mætti heimsmeisturum Spánar á Estadio Municipal Castalia í Castellon í kvöld í fyrsta leik sínum í undankeppni HM. 

Íslensku stelpurnar stóðu vel í þeim Spænsku framan af en það var vitað fyrir leikinn að þær spænsku myndu stjórna leiknum. Þær náðu þó ekki að setja mark þrátt fyrir urmul færa þar til fáránlegt mark í lok fyrrihálfleiks kom þeim Spænsku á bragðið. Þær bættu svo tveimur mörkum við í seinni hálfleik og lokaniðurstaða því 3-0. 
Í sjálfu sér ekki slæmt gegn ríkjandi heimsmeisturum Spánar og liðið sem situr á toppi heimslista FIFA. Stelpurnar geta allavega gengið nokkuð sáttar frá borði.


Lestu um leikinn: Spánn 3 -  0 Ísland

Byrjunarliðið

Cecilía Rán Rúnarsdóttir - 8 (Maður leiksins)
Varði og varði og varði í þessum leik! Átti nokkrar vörslur af mjög stuttu færi og kom algjörlega í veg fyrir að Alexia Putella kæmi boltanum í netið. Hún var yfirleitt frábærlega vel staðsett. Gat í raun ekkert gert í mörkunum sem öll voru vel hnitmiðuð upp í vinkil.

Sandra María Jessen – 6
Var virkilega dugleg fremst á vellinum, reyndi við alla bolta og setti pressu. Sinnti varnarhlutverkinu líka með mikilli prýði.

Glódís Perla Viggósdóttir - 7,5
Eins og herforingi í hjarta varnarinnar og stjórnar liðinu sínu eins og best er á kosið gegn heimsmeisturum. Átti mörg mjög mikilvæg móment í leiknum, varnar skallar og svo frábær í að vera fyrir. Átti svo einnig rosalegan skalla undir lok leiks. Óheppin að setja hann ekki inn

Ingibjörg Sigurðardóttir - 7
Virkilega flott í dag, Fleygði sér trekk í trekk fyrir og kom í veg fyrir fullt af mörkum.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - 6
Góður playmaker á miðjunni, var góð á boltanum þegar hún fékk hann en hafði svo sem úr litlu að moða fram á við. Skilaði varnarhlutverkinu vel.

Hlín Eiríksdóttir - 6
Komst í ágætis stöðu fram á við. Varðist vel og barðist fyrir sínu. 

Hildur Antonsdóttir - 6,5
Er frábær í skítverkunum á miðjunni, ótrúlega vinnusöm og átti flottan skalla sem fór rétt yfir markið. 

Ída Marín Hermannsdóttir - 8
Stimplaði sig rækilega inn í byrjunarliðið! Varðist virkilega, virkilega vel, átti mörg mjög mikilvægt varnarmóment. Átti svo fínan sprett undir lokinn sem tryggði innkast á góðum stað

Guðrún Arnardóttir - 6
Var solid í dag, átti mörg frábær varnarmóment, frábærar tæklingar, átti eina slaka sendingu sem hefði getað endað illa en annars bara flott. 

Sædís Rún Heiðarsdóttir - 7
Gerði virkilega vel gegn frábærum sóknarmönnum Spánar. Náði vel saman við Sveindísi. Átti góð móment góð!

Sveindís Jane Jónsdóttir – 7,5
 Var virkilega góð varnarlega, átti frábærar tæklingar og náði vel saman við Sædísi, náðu oft á tíðum að loka mjög vel og lítið sem fór í gegnum þær. Komst í ágætis stöðu í fyrri hálfleik en féll um sjálfa sig, klaufalegt.

Varamenn:

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir ('64)- 7
Diljá Ýr Zomers: ('64) - 6,5

Thelma Karen Pálmadóttir ('78)- Spilaði ekki nóg til að fá einkunn
María Catharina Ólfasd. Gros ('78) - Spilaði ekki nóg til að fá einkunn


Athugasemdir
banner