Þremur fyrstu leikjum kvöldsins er lokið í ensku úrvalsdeildinni, þar sem Everton og Sunderland fóru með sigra af hólmi.
Everton tók á móti fallbaráttuliði Burnley og verðskuldaði 2-0 sigur. James Tarkowski og Kiernan Dewsbury-Hall skoruðu mörkin. Tarkowski með skalla eftir aukaspyrnu og Dewsbury-Hall eftir frábæra stoðsendingu frá Dwight McNeil í kjölfar laglegs spils.
Everton er á lífi í baráttunni um evrópusæti, á meðan Burnley situr áfram í fallsæti - átta stigum frá öruggu sæti.
Sunderland hafði þá betur í nýliðaslagnum gegn Leeds United. Þar skoraði Habib Diarra eina mark leiksins úr vítaspyrnu eftir ótrúlega heimskulega ákvörðun Ethan Ampadu sem handlék boltann viljandi innan vítateigs. Sjáðu atvikið.
Leeds átti talsvert fleiri marktilraunir í annars nokkuð jöfnum slag, en eina marktilraun Sunderland sem hæfði rammann var úr vítaspyrnunni. Skömmu fyrr hafði Joe Rodon komið boltanum í netið fyrir heimamenn í Leeds, en ekki dæmt mark vegna rangstöðu eftir athugun í VAR-herberginu.
Það var mikið af töfum í síðari hálfleik og bætti dómarateymið 12 mínútum við venjulegan leiktíma. Hann flautaði viðureignina af á 113. mínútu og urðu lokatölur 0-1.
Sunderland er einnig á lífi í evrópubaráttunni, þremur stigum á eftir Everton, á meðan Leeds situr í neðri hlutanum - sex stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Að lokum gerðu Bournemouth og Brentford markalaust jafntefli. Heimamenn í Bournemouth voru sterkari aðilinn og fengu betri færi en tókst ekki að setja boltann í netið.
Marcus Tavernier komst næst því en hann skaut tvisvar sinnum í stöngina. Þá var mikill hiti að leikslokum þar sem Jordan Henderson virtist gjörsamlega brjálaður út í einhvern hjá Bournemouth og var næstum komið til handalögmála.
Brentford er einu stigi fyrir ofan Everton í afar þéttum pakka í efri hluta deildarinnar. Bournemouth er við hlið Sunderland á töflunni, fjórum stigum á eftir Brentford.
Everton 2 - 0 Burnley
1-0 James Tarkowski ('32 )
2-0 Kiernan Dewsbury-Hall ('60 )
Leeds 0 - 1 Sunderland
0-1 Habib Diarra ('70 , víti)
Bournemouth 0 - 0 Brentford
Athugasemdir




