Fotbolti.net
03.03.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England í dag - Meistararnir heimsækja botnliðið

Liverpool mætir Wolves

Liverpool mætir Wolves

Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Liverpool heimsækja botnlið Wolves í 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Alls eru fjórir leikir á dagskrá. Bournemouth tekur á móti Brentford klukkan 19:30.

Hákon Rafn Valdimarsson stóð í marki Brentford í síðasta deildarleik þar sem Caoimhin Kelleher, aðalmarkvörður liðsins, var á fæðingardeildinni ásamt konu sinni, en hann gæti snúið aftur í rammann í kvöld.

Leeds tekur á móti Sunderland í nýliðaslag á Elland Road og þá spilar Everton við Burnley á Hill Dickinson-leikvanginum í Liverpool-borg. Þessir þír leikir eru allir spilaðir klukkan 19:30.

Liverpool heimsækir síðan botnlið Wolves klukkan 20:15, en bæði lið þurfa nauðsynlegan sigur. Liverpool er í Meistaradeildarbaráttu á meðan Úlfarnir reyna hvað þeir geta til að forðast fall, þó það virðist óumflýjanlegt í augnablikinu.

Port Vale og Bristol City mætast þá í lokaleik 4. umferðar enska bikarisns. Sigurvegarinn mætir Sunderland þann 8. mars.

Leikir dagsins:
19:30 Bournemouth - Brentford
19:30 Leeds - Sunderland
19:30 Everton - Burnley
20:15 Wolves - Liverpool

Enski bikarinn:
19:45 Port Vale - Bristol City

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.