Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 22:21
Ívan Guðjón Baldursson
England: Liverpool tapaði fyrir Wolves
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Wolves 2 - 1 Liverpool
1-0 Rodrigo Gomes ('78 )
1-1 Mohamed Salah ('83 )
2-1 Andre ('94 )

Botnlið Wolves tók á móti Englandsmeisturum Liverpool í lokaleik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og úr varð afar áhugaverður leikur.

Staðan var markalaus eftir afar tíðindalítinn fyrri hálfleik þar sem gestirnir frá Liverpool fengu einu færin, en það var talsvert meira af marktækifærum eftir leikhléð.

Síðari hálfleikurinn var nokkuð jafn til að byrja með en þegar Liverpool virtist vera að ná völdum á vellinum skoraði Rodrigo Gomes fyrir Úlfana, á 78. mínútu leiksins. Hann skoraði eftir afar einfalda skyndisókn, þar sem hreinsun upp völlinn varð að marki. Gomes gerði mjög vel að lyfta boltanum yfir Alisson Becker til að ná forystunni.

Liverpool skipti um gír eftir að hafa lent undir. Hinn bráðefnilegi Rio Ngumoha var afar líflegur eftir innkomu af bekknum og átti skot í stöng en tókst ekki að skora. Jose Sá varði einnig vel frá honum en það var Mohamed Salah gerði jöfnunarmarkið. Hann vann boltann eftir hörmulega sendingu frá Jean-Ricner Bellegarde og gerði mjög vel að klára með marki.

Liverpool leitaði að sigurmarki en það var ennþá kraftur í Úlfunum sem pressuðu hátt upp völlinn í uppbótartíma, sem skilaði sér með óvæntu sigurmarki. Brasilíski miðjumaðurinn André fékk boltann eftir misheppnaða hreinsun frá Alisson Becker sem var undir þungri pressu og lét hann vaða skammt utan vítateigs.

Boltinn breytti um stefnu af varnarmanni og sveif yfir Alisson sem var búinn að skutla sér til jarðar. Þetta reyndist sigurmark leiksins á 94. mínútu og gætu Úlfarnir verið byrjaðir að trúa á sögulega endurkomu eftir mögnuð úrslit síðustu vikna.

Botnlið Wolves er núna búið að ná í sjö stig í síðustu þremur leikjum gegn Arsenal, Aston Villa og Liverpool með einu óheppnistapi gegn Crystal Palace þar á milli.

Wolves er áfram á botni deildarinnar en núna með 16 stig eftir 30 umferðir, ellefu stigum frá öruggu sæti.

Þrátt fyrir magnað gengi undanfarinna vikna þurfa Úlfarnir enn á kraftaverki að halda til að forðast fall.

Á sama tíma er þetta skellur fyrir meistaradeildarvonir Liverpool, sem situr í fimmta sæti - þremur stigum frá öruggu sæti í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner