Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
banner
   þri 03. mars 2026 12:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Glódís nefndi þá sem henni finnst best í heimi akkúrat núna
PEI
Patri Guijarro.
Patri Guijarro.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Stelpurnar okkar mæta ógnarsterku liði Spánverja í fyrsta leik sínum í undankeppni HM í kvöld. Svo eftir það er leikur gegn Evrópumeisturum Englands.

„Þetta er líklega erfiðasta verkefni sem við höfum nokkurn tímann verið í út frá heimslistanum, liðum sem við erum að mæta," sagði landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir við Fótbolta.net í gær.

Í liði Spánar eru margar stjörnur en Ballon d'Or verðlaunin, sem veitt eru bestu fótboltafólki heims ár hvert, hafa farið til spænskra leikmanna síðustu fimm árin. Aitana Bonmatí hefur unnið þau þrjú ár í röð en þar áður vann Alexia Putellas þau tvö ár í röð.

Glódís nefndi hins vegar annan leikmann þegar hún var spurð út í besta leikmann spænska liðsins.

„Já, þær eru náttúrlega með margar af bestu leikmönnum í heimi. Patri (Guijarro), sexan þeirra, finnst mér besti leikmaður í heimi akkúrat núna og hún stýrir öllu spili hjá þeim," sagði Glódís.

„Þannig ég myndi segja svona fyrst og fremst hún en ég gæti líklega talið upp flesta leikmenn í liðinu sem eru bara frábærar fótboltakonur og spila mjög fallegan fótbolta. Þetta verður mjög verðugt verkefni og verður gaman fyrir okkur að takast á við þetta."

Guijarro er leikmaður Barcelona og hefur spilað þar tæpa 400 leiki. Hún á jafnframt að baki 75 landsleiki fyrir Spánverja.
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Athugasemdir
banner