Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 19:57
Ívan Guðjón Baldursson
Undankeppni HM: Hetjuleg barátta gegn heimsmeisturunum
PEI
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Spánn 3 - 0 Ísland
1-0 Claudia Pina ('39)
2-0 Claudia Pina ('54)
3-0 Edna Imade ('76)

Lestu um leikinn: Spánn 3 -  0 Ísland

Stelpurnar okkar í íslenska kvennalandsliðinu heimsóttu besta landslið heims í undankeppni fyrir HM í kvöld.

Stelpurnar sáu aldrei til sólar gegn heimsmeisturunum frá Spáni sem sóttu án afláts frá fyrstu til síðustu mínútu leiksins.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir stóð sig hetjulega en þær spænsku klúðruðu urmul dauðafæra og leit fyrsta markið ekki dagsins ljós fyrr en á 39. mínútu, við nokkuð umdeildar aðstæður.

Sveindís Jane Jónsdóttir og Laia Codina lentu í harkalegum árekstri þar sem hausinn á Sveindísi varð fyrir augljósu höggi. Rusta Emanuela, albanskur dómari leiksins, ákvað að vera ekki að stöðva leikinn vegna höfuðmeiðslanna og uppskar mótmæli leikmanna, en hin feykiöfluga Claudia Pina nýtti sér tækifærið til að skora með frábæru skoti við vítateigslínuna.

Íslenska varnarlínan missti einbeitinguna í örskamma stund eftir áreksturinn og náði Cecilía ekki til boltans.

Síðari hálfleikurinn hélt áfram í sama fari, þar sem Cecilía Rán varði meistaralega á köflum en réði ekki við frábært skot frá Pina þegar hún tvöfaldaði forystuna á 54. mínútu.

Edna Imade innsiglaði svo sigur Spánverja með skalla eftir fyrirgjöf á 76. mínútu, lokatölur 3-0.

Íslenska liðið komst nokkrum sinnum í sókn í leiknum en tókst ekki að skapa mikla hættu. Stelpurnar voru í raun heppnar og geta þakkað Cecilíu fyrir að hafa ekki tapað þessum leik með stærri mun.

Næsti leikur í afar erfiðum undanriðli er á útivelli gegn Evrópumeisturum Englands. Sá leikur fer fram á City Ground, heimavelli Nottingham Forest, á laugardaginn.

England hóf riðilinn á því að rúlla yfir Úkraínu 6-1 fyrr í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner