Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 03. maí 2021 21:57
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Inaki afgreiddi Sevilla í lokin
Inaki Williams gerði sjötta mark sitt í deildinni á tímabilinu
Inaki Williams gerði sjötta mark sitt í deildinni á tímabilinu
Mynd: EPA
Sevilla 0 - 1 Athletic
0-1 Inaki Williams ('90 )

Inaki Williams skoraði eina mark leiksins er Athletic Bilbao vann Sevilla 1-0 í spænsku deildinni í kvöld en markið kom undir lok leiksins.

Sevilla er þegar búið að tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð á meðan Bilbao á örlítinn séns á að ná Evrópudeildarsæti.

Leikmenn Athletic keyrðu í hraða skyndisókn undir lokin. Oihan Sancet var með boltann hægra megin, beið eftir að varnarmaðurinn myndi leggja til atlögu áður en hann lagði boltann út á Inaki sem skoraði með fallegu hægri fótar skoti upp í samskeytin.

Góður sigur Athletic sem er í 9. sæti deildarinnar með 45 stig, átta stigum frá Real Sociedad sem situr í Evrópudeildarsætinu. Aðeins fjórir leikir eru eftir af deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner