Fotbolti.net
19.09.26 - 15:19
Helgi Inguson

Byrjunarliðin í 100 milljóna króna leiknum: Heimir gerir tvær breytingar

Sigurvegarinn tryggir sér sæti í Bestu deildinni og hlýtur jafnframt þennan glæsilega bikar.

Sigurvegarinn tryggir sér sæti í Bestu deildinni og hlýtur jafnframt þennan glæsilega bikar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Úrslitaleikur umspils Lengjudeildarinnar hefst eftir tæplega klukkustund, þegar Þróttur R. og Fylkir etja kappi á Laugardalsvelli. Búið er að opinbera byrjunarliðin í 100 milljóna króna leiknum, eins og hann hefur verið kallaður.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 0 Fylkir
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, stillir upp óbreyttu byrjunarliði frá 2-1 sigri gegn Njarðvík í síðasta leik. Njörður Þórhallsson, sem fór meiddur af velli í leiknum, er heill og er í byrjunarliðinu í dag.

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, gerir tvær breytingu á sínu liði frá 2-2 jafntefli gegn HK í framlengdum leik síðastliðinn sunnudag.

Arnór Snær Guðbjörnsson lét reka sig af velli í leiknum og er því fjarri góðu gamni í dag. Þá fær Magnús Daði Ottesen sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Máni Austmann Hilmarsson og Nikulás Val Gunnarsson.

Byrjunarlið Þróttur R.

  • 1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
  • 2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
  • 3. Stefán Þórður Stefánsson
  • 4. Njörður Þórhallsson
  • 8. Baldur Hannes Stefánsson (f)
  • 10. Sigurður Egill Lárusson
  • 21. Brynjar Gautur Harðarson
  • 22. Kári Kristjánsson
  • 25. Hlynur Þórhallsson
  • 27. Örn Bragi Hinriksson
  • 32. Aron Snær Ingason

Byrjunarlið Fylkir

  • 1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
  • 3. Arnór Breki Ásþórsson (f)
  • 4. Hlynur Sævar Jónsson
  • 6. Guðfinnur Þór Leósson
  • 7. Máni Austmann Hilmarsson
  • 17. Birkir Eyþórsson
  • 18. Nikulás Val Gunnarsson
  • 20. Theodór Ingi Óskarsson
  • 70. Guðmundur Tyrfingsson
  • 77. Bjarki Steinsen Arnarsson
  • 92. Kári Sigfússon
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.