19.09.26 - 18:37
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Ísak kom inn af bekknum - Dortmund vann í Stuttgart

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það voru spilaðir fimm leikir í efstu deild þýska boltans í dag þar sem Ísak Bergmann Jóhannesson var ekki í byrjunarliðinu hjá FC Köln annan leikinn í röð.
Liðsfélagar hans voru tveimur mörkum undir á útivelli gegn Hamburger SV þegar Ísaki var skipt inn á 67. mínútu. Köln tókst að minnka muninn eftir innkomu Ísaks en jöfnunarmarkið leit aldrei dagsins ljós, svo lokatölur urðu 2-1.
Köln er með fjögur stig eftir fjórar fyrstu umferðir nýs deildartímabils á meðan HSV var að ná í sín fyrstu stig á tímabilinu.
Borussia Dortmund heimsótti Stuttgart í stórleik dagsins og var staðan markalaus lengst af í jöfnum slag. Gestirnir frá Dortmund fengu þó hættulegri færi og skoraði Maximilian Beier eina mark leiksins á 70. mínútu, eftir undirbúning frá Jobe Bellingham sem hafði komið inn af bekknum skömmu áður.
Stuttgart tókst ekki að svara með marki svo lokatölur reyndust 0-1 og er liðið aðeins með 3 stig eftir fjórar fyrstu umferðirnar.
Dortmund hefur farið gríðarlega vel af stað í stigasöfnun og er með fullt hús stiga.
Í öðrum leikjum dagsins hafði Mainz betur í sjö marka slag í Mönchengladbach á meðan Eintracht Frankfurt og Freiburg skildu jöfn í fjögurra marka leik. Werder Bremen vann að 3-2 gegn Augsburg og því voru í heildina 20 mörk skoruð í leikjum dagsins.
Borussia M. 3 - 4 Mainz
1-0 Florian Neuhaus ('11 )
1-1 Phillip Tietz ('18 )
1-2 Sheraldo Becker ('45 )
1-2 Kevin Diks ('57 , Misnotað víti)
2-2 Isac Lidberg ('59 )
2-3 Eric Martel ('78 )
2-4 Danny da Costa ('89 )
3-4 Shuto Machino ('90 , víti)
Eintracht Frankfurt 2 - 2 Freiburg
1-0 Younes Ebnoutalib ('10 )
1-1 Derry Scherhant ('34 )
2-1 Jonathan Burkardt ('36 )
2-2 Yuito Suzuki ('48 )
Hamburger 2 - 1 Koln
1-0 Nicolas Capaldo ('44 )
2-0 Yussuf Poulsen ('51 )
2-1 Ragnar Ache ('90 )
Werder 3 - 2 Augsburg
0-1 Robin Fellhauer ('18 )
0-2 Calvin Brackelmann ('58 )
1-2 Marco Grull ('66 )
2-2 Niclas Fullkrug ('86 )
3-2 Mitchell Weiser ('90 )
Stuttgart 0 - 1 Borussia D.
0-1 Maximilian Beier ('70 )