Fotbolti.net
19.09.26 - 15:23
Sölvi Haraldsson

Bolli Már um Hjamma: Ertu að tala um það helvítis fífl?

Auglýsing
Bolli Már um Hjamma: Ertu að tala um það helvítis fífl?
Canon

Mynd: Úr einkasafni

Lengjudeildin
„Mér líður bara fáranlega vel. Eins og þú sérð hérna að þá er Elvar uppi á sviði, það er troðullt inni, troðfullt hérna fyrir utan, fólk er að fá sér ölsen og það er bara gleði. Það er uppskeruhátið, við lítum á það þannig, það er uppskeruhátíð. Svo ætlum við að toppa það hérna á eftir með því að vinna þennan helvítis leik. Það eru bara allir glaðir og stoltir, það er tilfinningin.“ sagði Bolli Már Bjarnason, uppistandari og mikill Þróttari, fyrir úrslitaleik Fylkis og Þróttar í umspili Lengjudeildarinnar þegar Fótbolti.net náði á honum tali í Þróttaraheimilinu.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 0 Fylkir
„Þú sérð það bara á mér að tilfinningin er ógeðslega góð. Ef við vinnum hérna á eftir, sem ég veit að við gerum, þá verður bara partý. Ég gæti haldið partý sem færi í sögubækurnar, það er bara þannig.“ sagði Bolli þegar hann var spurður út í tilfinninguna fyrir leik.

Hjálmar Örn Jóhannsson hefur mikið látið fyrir sér fara í aðdraganda leiksins, gerir Bolli ráð fyrir því að hann mæti í half and half treyju merkt Fylki og Þrótti?

„Já ertu að tala um það helvítis fífl? Hjálmar Örn Jóhannsson, skemmtikraftinn geðuga? Nei hann gerir það ekki. Hann mætir í Fylkistreyjunni en Þróttaratreyjunni undir en svo þegar Þróttur vinnur fer hann úr Fylkistreyjunni, þann mann sem hann hefur að geyma. Svo mætir hann auðvitað seint á völlinn líka því hann er í DocZone. Það er aldrei hægt að taka sér frí fyrir neitt. Maður var að taka sér frí frá giggum í kvöld, allt fyrir Þrótt, en Hjammi það virðist ekki vera nein prinsipp lengur, því miður.“

Þróttur vann báða leikina í sumar gegn Fylki 3-1. Verður það sama upp á teningnum núna?

„3-1 Þróttur, öruggt allan tímann. Three-peat baby.“ sagði Bolli að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.