Fabrizio Romano greinir frá því að Crystal Palace er að nálgast samkomulag við Pierre Sage sem nýjan aðalþjálfara meistaraflokks.
Sage er 47 ára gamall og gerði frábæra hluti með Lens á nýliðnu tímabili. Hann stýrði liðinu til sögulegs sigurs í franska bikarnum auk þess að enda afar óvænt í öðru sæti deildarinnar, verandi eina liðið sem veitti risaveldi PSG einhverja raunverulega baráttu um Frakklandsmeistaratitilinn.
Þar áður þjálfaði hann Lyon í rúmt ár og því verður Palace aðeins fjórða félagið sem hann stýrir á ferlinum, eftir að hafa einnig stýrt Chambéry sem bráðabirgðaþjálfari fyrir rúmum áratugi.
Palace mun þurfa að kaupa Sage úr röðum Lens þar sem hann á tvö ár eftir af samningi. Hann tekur við af Oliver Glasner sem hefur verið orðaður við ýmis stórveldi víðs vegar um Evrópu eftir magnaðan árangur með Palace.
Palace hefur meðal annars verið orðað við Frank Lampard, Thomas Frank og Kieran McKenna að undanförnu en Sage virðist vera að taka við.
01.06.2026 13:13
Sage í viðræðum við Palace




