03.08.26 - 15:25
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin á Skaganum

Úr leiknum í gær

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leiknum í gær

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA og Víkingur gerðu 2-2 jafntefli í miklum hitaleik í Bestu deild karla á ELKEM-vellinum á Akranesi í gær. Tvö rauð spjöld fóru á loft.
Skagamenn komust tvívegis yfir í leiknum. Gísli Laxdal Unnarsson braut ísinn á 38. mínútu en Helgi Guðjónsson jafnaði af miklu öryggi úr vítaspyrnu aðeins nokkrum mínútum síðar.
Gísli Eyjólfsson kom ÍA aftur yfir snemma í síðari hálfleik með laglegum skalla eftir fyrirgjöf nafna síns. Víkingar svöruðu öðru sinni þegar skot Gylfa Þórs Sigurðssonar fór af varnarmanni, breytti um stefnu og endaði í netinu.
Oliver Ekroth, varnarmaður Víkings, fékk rauða spjaldið þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir fyrir að rífa Gísla Eyjólfs niður. Það jafnaðist hins vegar í liðum á 84. mínútu þegar Gísli var rekinn af velli fyrir að setja hausinn í Davíð Örn Atlason.
Allt það helsta úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.