02.08.26 - 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Man City haggast ekki þegar kemur að verðmiðanum

Man City selur Rodri ekki fyrir minna en 75 milljónir evra

Mynd: EPA

Manchester City er ekki reiðubúið að selja spænska miðjumanninn Rodri undir 75 milljónum evra í sumar. Sport segir frá þessu í dag.
Real Madrid á í viðræðum við Man City um Rodri sem varð heimsmeistari með Spáni í síðasta mánuði.
Rodri vill fara til Real Madrid og City er tilbúið að selja hann, en aðeins fyrir 75 milljónir evra.
Madrídingar hafa hingað til ekki viljað ganga að því verði. Samkvæmt Sport ætlar City hins vegar ekki að gefa neitt eftir og er frekar tilbúið að halda miðjumanninum þar til samningur hans rennur út á næsta ári.
Real Madrid vill sem stendur ekki greiða meira en 50 milljónir evra og því er allt komið í hnút, að minnsta kosti í bili.
Rodri er þrítugur varnarsinnaður miðjumaður sem hefur verið einn besti leikmaður heims síðustu ár. Hann kom til Man City frá Atlético Madríd árið 2019 og síðan þá unnið þrettán titla og var þá krýndur besti fótboltamaður heims árið 2024.