02.08.26 - 22:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Szoboszlai: Annars verður næsta tímabil eins og síðasta

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Liverpool tapaði 4-2 gegn Leeds í síðasta æfingaleik sínum í Bandaríkjunum í kvöld.
Liverpool náði tveggja marka forystu en Leeds skoraði fjögur mörk í seinni hálfleik. Tvö marka Leeds komu eftir löng innköst. Dominik Szoboszlai segir að liðið þurfi að gera mun betur í föstum leikatriðum.
Liverpool fékk á sig 20 mörk í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð eftir föst leikatriði, flest allra liða í deildinni.

„Nokkrir komu seint og nokkrir eru ekki komnir. Við höfum lært mikið, við verðum að halda áfram. Maður verður að horfa á jákvæðu hliðarnar jafnvel þegar þetta er neikvætt. Ég veit að þessi leikur var ekki okkar besti en við stjórnuðum leiknum algjörlega í fyrri hálfleik," sagði Szoboszlai.
„VIð fengum á okkur tvö mörk úr föstum leikatriðum, við verðum að huga betur að þeim. Horn og innköst urðu mjög mikilvæg á síðustu leiktíð, við verðum að huga betur af þeim annars verður næsta tímabil eins og síðasta."