Mainoo til Napoli? - Höjlund snýr ekki til baka í janúar - Þrír miðjumenn orðaðir við United - Spurs tilbúið að borga 70 milljónir punda
   lau 04. mars 2023 18:02
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu flautumark Nelson mínútu framyfir uppbótartímann

Arsenal vann glæsilegan endurkomusigur á fallbaráttuliði Bournemouth eftir að hafa lent óvænt tveimur mörkum undir á heimavelli.


Arsenal tókst að snúa leiknum sér í vil og jafnaði í síðari hálfleik en staðan var enn 2-2 þegar komið var í uppbótartíma.

Það var að lokum varamaðurinn Reiss Nelson sem tókst að gera sigurmark Arsenal en hann skoraði það eftir að sex mínútna uppbótartíminn var runninn út.

Nelson skoraði með laglegu skoti sem fór yfir þéttan pakka í vítateignum og söng í netinu.

Þetta er gífurlega mikilvægt mark fyrir Arsenal sem er aftur komið í fimma stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

„Þetta er stórkostlegt. Allir sturluðust þegar boltinn fór inn. Þetta er frábær stund fyrir mig, ég hef verið hérna allt mitt líf og þetta hefur því mikla þýðingu fyrir mig. Ég er ótrúlega ánægður," sagði Nelson að leikslokum.

Sjáðu flautumarkið


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 11 8 2 1 20 5 +15 26
2 Man City 11 7 1 3 23 8 +15 22
3 Chelsea 11 6 2 3 21 11 +10 20
4 Sunderland 11 5 4 2 14 10 +4 19
5 Tottenham 11 5 3 3 19 10 +9 18
6 Aston Villa 11 5 3 3 13 10 +3 18
7 Man Utd 11 5 3 3 19 18 +1 18
8 Liverpool 11 6 0 5 18 17 +1 18
9 Bournemouth 11 5 3 3 17 18 -1 18
10 Crystal Palace 11 4 5 2 14 9 +5 17
11 Brighton 11 4 4 3 17 15 +2 16
12 Brentford 11 5 1 5 17 17 0 16
13 Everton 11 4 3 4 12 13 -1 15
14 Newcastle 11 3 3 5 11 14 -3 12
15 Fulham 11 3 2 6 12 16 -4 11
16 Leeds 11 3 2 6 10 20 -10 11
17 Burnley 11 3 1 7 14 22 -8 10
18 West Ham 11 3 1 7 13 23 -10 10
19 Nott. Forest 11 2 3 6 10 20 -10 9
20 Wolves 11 0 2 9 7 25 -18 2
Athugasemdir
banner
banner
banner