Fotbolti.net
27.11.26 - 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Svekktur þegar Stjarnan hafnaði tilboði erlendis frá

Auðvitað var maður svekktur en maður skilur alveg ákvörðun félagsins

Auðvitað var maður svekktur en maður skilur alveg ákvörðun félagsins

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Örvar Eggertsson hefur spilað vel fyrir Stjörnuna undanfarin tímabil og átti mjög fínt tímabil í ár. Hann skoraði átta mörk og lagði upp átta í Bestu deildinni.

Örvar staðfesti í viðtali við Fótbolta.net í gær að erlent félag hefði boðið í sig en vildi ekki segja hvaða félag það var.

Valur reyndi að kaupa hann af Stjörnunni í sumarglugganum og í sama glugga reyndi, samkvæmt heimildum Fótbolta.net, norskt félag að fá sóknarmanninn í sínar raðir.
Líður mjög vel í Garðabæ - „Mæti á æfingu þegar mér er sagt að mæta"
TENGT EFNI

Líður mjög vel í Garðabæ - „Mæti á æfingu þegar mér er sagt að mæta"

Svekktur þegar tilboði erlendis frá var hafnað
Fótbolti.net greindi frá því í sumar að Valur hefði boðið í Örvar í glugganum. Samkvæmt heimildum hafnaði Stjarnan 12 milljóna króna tilboði í Örvar.

Varðst þú eitthvað svekktur að því hafi ekki verið tekið?

„Nei, alls ekki. Mér líður mjög vel í Garðabænum, ég held að Garðbæingar viti það. Ég er búinn að vera hér í þrjú ár núna og er að fara inn í það fjórða. Mér líður bara mjög vel hérna."

Það hefur heyrst af því að það hafi verið áhugi á þér erlendis frá í sumar, hvernig var það?

„Því var hafnað á sínum tíma. Jú, jú, þetta hefur alltaf verið draumur hjá mér að kíkja út og kannski kemur eitthvað annað aftur. Þannig það er bara hausinn upp og halda áfram."

Varðst þú svekktur með að tilboðinu var hafnað?

„Auðvitað var maður svekktur en maður skilur alveg ákvörðun félagsins," sagði Örvar.
Svekktur þegar Stjarnan hafnaði tilboði erlendis frá
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mér líður mjög vel í Garðabænum, ég held að Garðbæingar viti það.

Mér líður mjög vel í Garðabænum, ég held að Garðbæingar viti það.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.