Fotbolti.net
27.11.26 - 12:16
Elvar Geir Magnússon

Daníel Leó: Tekur sinn toll þegar dóttir manns gengur í gegnum þetta

Daníel Leó er lykilmaður í íslenska landsliðinu.

Daníel Leó er lykilmaður í íslenska landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenski landsliðsvarnarmaðurinn Daníel Leó Grétarsson skoraði í 4-1 sigri AGF gegn Brann í gær en þetta var hans fyrsti leikur fyrir danska félagið í mánuð.

Daníel fór í persónulegt leyfi og opnaði sig í viðtali við Fótbolta.net fyrr í þessum mánuði um að dóttir hans hafi þurft að gangast undir hjartaaðgerð í Svíþjóð.
Dóttir Daníels fór í stóra aðgerð - „Þurfti að fá að vera pabbi og eiginmaður“
TENGT EFNI

Dóttir Daníels fór í stóra aðgerð - „Þurfti að fá að vera pabbi og eiginmaður“

„Það hefur ekki verið auðvelt að vera fjarri liðinu svona lengi, en strákarnir hafa verið svo góðir að hjálpa mér að koma mér aftur á rétta braut," sagði Daníel Leó við danska miðilinn Bold eftir leikinn í gær.

Aðgerðin sem dóttir hans fór í heppnaðist vel en fjölskylda hans er nú heima á Íslandi á meðan hann sinnir starfi sínu sem atvinnumaður í Danmörku.

„Fjölskylda mín saknar mín mikið og þegar dóttir manns gengur í gegnum eitthvað sem er gríðarleg byrði bæði líkamlega og andlega, þá tekur það mikið á mann. Það tekur sinn toll af manni. En ég er bara glaður að öllum líður vel. Hún er að klára síðasta hluta bataferilisins hjá læknunum. Ég get ekki beðið eftir að þau flytji til Árósa og búi hjá mér," segir Daníel Leó.

Heimild: Bold

Daníel skoraði í gær.

Daníel skoraði í gær.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.