Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 09:55
Elvar Geir Magnússon
Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður
Powerade
Micky van de Ven.
Micky van de Ven.
Mynd: EPA
Pio Esposito er ungur og spennandi leikmaður.
Pio Esposito er ungur og spennandi leikmaður.
Mynd: EPA
Barcelona vill fá leikmann Tottenham, Framtíð Bruno Fernandes veltur á því hvort Manchester United komist í Meistaradeildina og Aston Villa vill leikmann Fulham. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins.

Barcelona vill fá Micky van de Ven (24) frá Tottenham og ætlar að leggja aukinn þunga á tilraunir sínar til að landa hollenska varnarmanninum í sumar. (Sport)

Manchester United er tilbúið að bjóða portúgalska miðjumanninum Bruno Fernandes (31) endurbættan samning sem færir honum 400 þúsund pund í vikulaun. Bruno ætlar að bíða og sjá hvort United komist í Meistaradeildina. (Mirror)

Enn ríkir óvissa um langtímaframtíð Kobbie Mainoo (20) hjá Manchester United en viðræður um nýjan samning hafa dregist á langinn. (Mail)

Arsenal hefur fengið þau skilaboð frá Inter að ítalski framherjinn Pio Esposito (20) sé ekki til sölu, sama hver upphæðin sé. (Gazzetta dello Sport)

Juventus hyggst endurnýja áhuga sinn á franska framherjanum Randal Kolo Muani (27) sem er hjá Tottenham á láni frá Paris St-Germain. (Calciomercato)

Aston Villa er eitt af þeim félögum sem hafa áhuga á velska sóknarmiðjumanninum Harry Wilson (28). Wilson hefur átt frábært tímabil með Fulham en samningur hans rennur út í sumar. (Fabrizio Romano)

Brentford hyggst losa sig við allt að fimm leikmenn í sumar, þar á meðal portúgalska miðjumanninn Fabio Carvalho (23). (The I)

Manchester United hefur ekki í hyggju að selja enska miðjumanninn Mason Mount (27) í sumar þrátt fyrir áhuga frá Aston Villa og Fulham. (Football Insider)

Juventus virðist hafa komist nær því að gera nýjan samning við Dusan Vlahovic (26) en núgildandi samningur serbneska sóknarmannsins rennur út í sumar. (Tuttosport)

Austurríski miðjumaðurinn Konrad Laimer (28) er ekki nálægt því að gera nýjan samning við Bayern München. Það ber mikið á milli í viðræðunum. (Sky Sports Þýskalandi)

Massimiliano Allegri, stjóri AC Milan, er einn af þeim sem koma til greina sem næsti stjóri Real Madrid. (Il Corriere dello Sport)
Athugasemdir
banner
banner