Síðasti leikur kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni er viðureign Newcastle og Manchester United á St James' Park.
Búið er að opinbera byrjunarliðin fyrir þennan leik og má sjá þau hér fyrir neðan.
Búið er að opinbera byrjunarliðin fyrir þennan leik og má sjá þau hér fyrir neðan.
Michael Carrick heldur sig við að breyta litlu. Noussair Mazraoui kemur inn fyrir Diogo Dalot en Luke Shaw heldur sæti sínu þrátt fyrir að hafa meiðst gegn Crystal Palace.
Hjá Newcastle tekur Nick Pope sér sæti á bekknum eftir að hafa gert mistök gegn Everton. Aaron Ramsdale kemur inn í hans stað. Þá kemur Harvey Barnes inn fyrir Nick Woltemade.
Byrjunarlið Newcastle: Ramsdale, Trippier, Thiaw, Burn, Hall, Tonali, Ramsey, Joelinton, Elanga, Gordon, Barnes.
Byrjunarlið Man Utd: Lammens, Mazraoui, Yoro, Maguire, Shaw, Casemiro, Mainoo, Fernandes, Mbeumo, Sesko, Cunha.
Athugasemdir


