Segja má að Arsenal sé í draumaheimi eftir leiki kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Manchester City tapaði nefnilega stigum á heimavelli á meðan Arsenal tók þrjú stig á erfiðum útivelli. Arsenal er núna í kjörstöðu að vinna deildina með átta leiki eftir.
Bukayo Saka gerði eina mark Arsenal gegn Brighton á útivelli í kvöld. Skot hans hafði viðkomu í öðrum leikmanni en Bart Verbruggen, markvörður Brighton, hefði klárlega átt að verja skotið.
Saka var að spila sinn 300. leik fyrir Arsenal og hann var hetjan að þessu sinni.
Arsenal spilaði klárlega ekki sinn besta leik en það dugði. Það hefur svolítið verið þemað að undanförnu.
Man City, sem er eina liðið sem er í keppni við Arsenal um titilinn, gerði á sama tíma jafntefli gegn Nottingham Forest á heimavelli. City tók forystuna tvisvar í leiknum en eins og svo oft áður á þessu tímabili eru þeir klaufar og klúðra málunum. City fékk dauðafæri til að skora sigurmarkið í lokin en gestirnir björguðu á línu.
Það verður að gefa Forest mikið hrós og þessi úrslit gætu gefið þeim mikinn bónus fyrir fallbaráttuna sem framundan er.
Arsenal er núna með sjö stiga forskot á City. Þó eiga City-menn leik til góða og þessi lið eiga að mætast innbyrðis. En þessi úrslit í kvöld setja Arsenal í frábæra stöðu að vinna sinn fyrsta Englandsmeistaratitil í meira en 20 ár.
Joao Pedro í banastuði
Á Villa Park í Birmingham mætti Chelsea í heimsókn í algjörum lykilleik í Meistaradeildarbaráttunni.
Bæði þessi lið eru að berjast um að komast í Meistaradeildina og þetta var afar mikilvægur leikur í þeirri baráttu. Ekki byrjaði leikurinn vel fyrir Chelsea því Douglas Luiz skoraði eftir aðeins tvær mínútur og kom Villa yfir.
Joao Pedro jafnaði hins vegar metin eftir rúmlega hálftíma leik og fyrir hálfleik hafði hann komið Chelsea yfir. Ollie Watkins skoraði í millitíðinni en það mark var dæmt af vegna rangstöðu. Afskaplega tæpt en það var dæmt af.
Í seinni hálfleiknum gekk Chelsea frá dæminu með tveimur mörkum, fyrst frá Cole Palmer og svo fullkomnaði Joao Pedro þrennuna.
Leikmenn Aston Villa virka bensínlausir og eru núna í stórhættu að missa af Meistaradeildinni. Ekki er langt síðan var talað um Villa í titilbaráttu en núna eru breyttir tíma. Þetta er stærsti sigur Liam Rosenior sem stjóra Chelsea til þessa en Lundúnaliðið fer upp fyrir Liverpool í fimmta sætinu. Villa er áfram í fjórða sæti en bara þremur stigum frá Chelsea.
West Ham setur pressu á Tottenham
Í fallbaráttunni voru svo úrslit sem gleðja ekki stuðningsmenn Tottenham því West Ham vann frekar óvæntan útisigur á Fulham, 0-1. Crysencio Summerville, sem hefur verið drjúgur að undanförnu, gerði sigurmarkið um miðbik seinni hálfleiks.
Eftir þessi úrslit, og stigið sem Nottingham Forest sótti til Manchester, er Tottenham bara einu stigi frá fallsvæðinu fyrir leik sinn gegn Crystal Palace á morgun.
Aston Villa 1 - 4 Chelsea
1-0 Douglas Luiz ('2 )
1-1 Joao Pedro ('35 )
1-2 Joao Pedro ('45 )
1-3 Cole Palmer ('55 )
1-4 Joao Pedro ('64 )
Manchester City 2 - 2 Nott. Forest
1-0 Antoine Semenyo ('31 )
1-1 Morgan Gibbs-White ('56 )
2-1 Rodri ('62 )
2-2 Elliot Anderson ('76 )
Brighton 0 - 1 Arsenal
0-1 Bukayo Saka ('9 )
Fulham 0 - 1 West Ham
0-1 Crysencio Summerville ('65 )
Athugasemdir


