Fotbolti.net
04.03.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Er ekki gæinn sem brosi og segi að allt sé frábært

Igor Tudor á hliðarlínunni.

Igor Tudor á hliðarlínunni.

Canon

Mynd: EPA

Það hafa verið miklir erfiðleikar hjá Tottenham. Króatinn Igor Tudor var ráðinn stjóri út tímabilið en Tottenham hefur tapað báðum leikjunum undir hans stjórn og er nú fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Á fréttamannafundi í dag var Tudor spurður að því hvort leikmenn væru bak við tjöldin farnir að ræða um möguleika á falli?

„Það hefur aðeins verið rætt. Þeir eru aðeins byrjaðir að ræða það núna," segir Tudor.
Tottenham hljóti að vera að íhuga að reka Tudor strax
TENGT EFNI

Tottenham hljóti að vera að íhuga að reka Tudor strax

„Við erum reiðir og svekktir og eigum að vera það. Ég ætla ekki að vera gaurinn sem segir að allt sé frábært, brosi og láti eins og ekkert hafi gerst."

„Við höfum fengið stuttan en góðan tíma til að búa okkur undir næsta leik og ég er ánægður með viðbrögð leikmanna. Við þurfum að vera bjartsýnir fyrir leikinn á morgun. Við spilum heima gegn góðu liði en erum á okkar heimavelli fyrir framan okkar stuðningsmenn."

Tottenham mætir Crystal Palace annað kvöld. Tudor greindi frá því á fundinum að Djed Spence yrði ekki með í leiknum en vonast er til þess að hann verði klár gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í næstu viku.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.