Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kemur Garnacho til varnar - Glímt við persónuleg vandamál
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, hefur komið leikmanni sínum, Alejandro Garnacho, til varnar.

Garnacho verður ekki kallaður vinsæll leikmaður í ensku úrvalsdeildinni en það er reglulega baulað og kallað á hann af stuðningsmönnum andstæðinga Chelsea og einnig frá hluta af stuðningsfólki Chelsea.

Garnacho var keyptur til Chelsea frá Manchester United síðasta sumar og hefur ekki átt frábært tímabil á Stamford Bridge.

Rosenior segir að Garnacho sé að glíma við hluti í sínu persónulega lífi og ýjar að því að áhorfendur séu of fljótir að móta sér skoðanir án þess að vita alla söguna.

Stjórinn er ánægður með hvernig Argentínumaðurinn hefur höndlað síðusut vikur þar sem hann hefur spilað lítið.

„Ég er mjög hrifinn af því hvernig hann hefur tæklað það að vera ekki í byjunarliðinu. Garna hefur komið sér á mjög góðan stað á síðustu vikum og hann er meira en að banka á dyrnar varðandi sæti í liðinu. Við þurfum að taka það með í reikninginn að hann er 21 árs. Hann er gríðarlega hæfileikaríkur. Hann getur náð gríðarlega langt."

„Það hafa erfiðir hlutir átt sér stað í lífi hans nýlega og í stað þess að segja mér frá því, þá vildi hann spila og sagði mér svo eftir leikinn að hann þyrfti að fara heim. Fólk dæmir út frá útliti. Garna er mjög góður karakter sem leggur hart að sér á æfingum. Að lokum mun hann sýna gæði sín mjög reglulega, ég er viss um það."

„Fólk dæmir bókina út frá kápunni. Ég reyni að meta fólk út frá því sem ég veit. Hann þarf að halda áfram að leggja hart að sér, því það er engin spurning að hann er góður leikmaður,"
segir Rosenior.

Pedro Neto tekur út leikbann gegn Aston Villa í dag og er Garnacho líklegur til að koma inn í byrjunarliðið.
Athugasemdir
banner