Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, hefur fengið fimmtán mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm í Grikklandi vegna þess sem átti sér stað á eyjunni Mykonos í ágúst 2020.
Maguire var í fríi á eyjunni fyrir um sex árum og var handtekinn eftir salagsmál á bar. Hann fékk upphaflega 21 mánaða skilorðsbundinn dóm og 10 daga í fangaklefa eftir að hafa verið dæmdur sekur um líkamsárás og um að hafa reynt að múta lögreglunni.
Lögfræðingateymi Maguire áfrýjaði þeim dómi og samkvæmt grísku lagakerfi þá féll sakfellingin niður og taka þurfti málið upp aftur frá grunni.
Endurupptökunni var frestað fjórum sinnum áður en málið var loks tekið upp aftur í dag. Þá var Maguire dæmdur sekur um minniháttar líkamsárás, mótspyrnu við handtöku og tilraun til mútugreiðslu.

Maguire heldur fram sakleysi sínu, er ákveðinn í að hreinsa nafn sitt og ætlar að áfrýja til hæstaréttar.
Maguire var sjálfur ekki viðstaddur dóminn í Grikklandi þar sem hann er í leikmannahópi Manchester United sem mætir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Athugasemdir