William Saliba er fjarri góðu gamni hjá Arsenal gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Saliba er að glíma við meiðsli en þau eru ekki talin alvarleg. Hann sneri í sigrinum gegn Chelsea síðasta sunnudag.
Saliba er að glíma við meiðsli en þau eru ekki talin alvarleg. Hann sneri í sigrinum gegn Chelsea síðasta sunnudag.
„Hann sneri sig á ökkla gegn Chelsea," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, fyrir leikinn gegn Brighton í kvöld.
„Hann náði einhvern veginn að klára leikinn, en hann gat ekki spilað í dag."
Christian Mosquera kemur inn í lið Arsenal í stað Saliba en það er líklegt að franski miðvörðurinn verði svo mættur bara í næsta leik.
Athugasemdir

