Jack Fletcher, ungur leikmaður Manchester United, hefur fengið sex leikja bann fyrir hommafóbískt orðbragð í garð andstæðings í U21 leik gegn Barnsley í október.
Hann er sonur Darren Fletcher, fyrrum leikmanns Manchester United og þjálfara U18 liðs félagsins.
Hann er sonur Darren Fletcher, fyrrum leikmanns Manchester United og þjálfara U18 liðs félagsins.
Jack kallaði andstæðing hommastrák eða 'gayboy' og fékk beint rautt spjald frá dómaranum. Hann fékk tveggja leikja bann en það var síðan þyngt um fjóra leiki í viðbót þar sem aganefnd taldi hann hafa brotið reglur varðandi særandi orðbragð sem tengist kynhneigð.
Í gegnum yfirlýsingu þá hefur Jack beðist afsökunar á orðbragði sem hann hafi notað „í hita leiksins“. Hann segist skilja að hegðun sín hafi ekki verið til fyrirmyndar og segist hafa beðist afsökunar beint eftir leikinn.
„Ég vil taka það skýrt fram að þetta endurspeglar alls ekki skoðanir mínar eða gildi," segir Jack Fletcher, sem verður 19 ára síðar í þessum mánuði.
Jack sagðist hafa misst stjórn á sér eftir að hann og leikmaður Barnsley höfðu verið að kýtast í gegnum leikinn. Eftir að leikmaðurinn kom með athugasemd sem tengdust bróður hans og föður svaraði Jack: „Þú virðist vita mikið um mig, ertu hommastrákur?"
Jack Fletcher spilaði þrjá leiki fyrir aðallið United í jólatörninni en Tyler tvíburabróðir hans hefur verið í aðalliðshópnum hjá United undir stjórn Michael Carrick og kom inn sem varamaður gegn Tottenham í síðasta mánuði.
Athugasemdir



