04.03.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Orri í hóp í undanúrslitaleiknum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson hefur komið gríðarlega öflugur inn í lið Real Sociedad eftir erfið meiðsli sem hafa haldið honum frá keppni stóran hluta tímabilsins.
Orri kom inn af bekknum og skoraði tvö í 3-3 jafntefli gegn Real Oviedo en varð fyrir vöðvameiðslum og missti því af næsta leik Sociedad á útivelli gegn Mallorca.
Óttast var að Orri myndi missa af seinni undanúrslitaleik Sociedad gegn nágrönnunum frá Bilbao en svo verður ekki. Hann er í hópnum sem tekur á móti Athletic Bilbao í eina bikarleik kvöldsins.
Sociedad fer inn í leikinn með eins marks forystu eftir sigur á útivelli í fyrri leik liðanna. Sigurvegari viðureignarinnar mætir Atlético Madrid í úrslitaleiknum.
Leikurinn hefst skömmu eftir leikslok í viðureign Rayo Vallecano og Real Oviedo í La Liga.
Copa del Rey
20:00 Real Sociedad - Athletic Bilbao
La Liga
18:00 Rayo Vallecano - Real Oviedo

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 9 | +30 | 27 |
| 2 | Atletico Madrid | 10 | +12 | 25 |
| 3 | Real Madrid | 9 | +14 | 21 |
| 4 | Betis | 9 | +2 | 19 |
| 5 | Real Sociedad | 9 | 0 | 16 |
| 6 | Sevilla | 9 | -2 | 14 |
| 7 | Alaves | 10 | +3 | 12 |
| 8 | Villarreal | 10 | +1 | 12 |
| 9 | Celta | 9 | +3 | 11 |
| 10 | Deportivo | 10 | 0 | 11 |
| 11 | Osasuna | 9 | -8 | 11 |
| 12 | Racing Santander | 10 | -11 | 11 |
| 13 | Levante | 9 | -2 | 10 |
| 14 | Elche | 10 | -3 | 10 |
| 15 | Athletic | 8 | -1 | 9 |
| 16 | Getafe | 9 | -6 | 9 |
| 17 | Vallecano | 9 | -8 | 9 |
| 18 | Espanyol | 10 | -2 | 8 |
| 19 | Valencia | 10 | -10 | 6 |
| 20 | Malaga | 10 | -12 | 5 |