Fotbolti.net
04.03.26 - 10:50
Elvar Geir Magnússon

Telur að Carrick sé kominn með starfið í sínar hendur

Michael Carrick hefur náð fantaflottum árangri sem stjóri United.

Michael Carrick hefur náð fantaflottum árangri sem stjóri United.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur ekki tapað leik síðan Michael Carrick tók við sem bráðabirgðastjóri í janúar. Liðið hefur unnið sex af sjö leikjum undir stjórn hans.

Nathan Ridley, blaðamaður Mirror, fjallar um stöðu mála og telur að Carrick sé kominn með starfið í sínar hendur.

Veðbankar eru á sama máli og líklegast er talið að hann verði ráðinn til frambúðar. Það sem styrkir þá afstöðu er að enginn augljós kostur sé í stöðuna.
Carrick jafnaði met Postecoglou
TENGT EFNI

Carrick jafnaði met Postecoglou

Jo Tounge, umboðsmaður Carrick, var meðal áhorfenda í sigurleiknum gegn Crystal Palace um síðustu helgi.

„Það er ekki mikið sem ég get sagt. Ég elska að vera hérna, ég elska starfið og hef sagt það frá fyrsta degi," sagði Carrick eftir sigurinn gegn Palace.

Hann hefur sagt að starf sitt sé meðal annars að undirbúa næsta tímabil og taka ákvarðanir sem hjálpa félaginu til langs tíma, sama hver muni stýra liðinu eftir sumarið.

Manchester United er komið upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið heimsækir Newcastle í kvöld.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.