Douglas Jesus, markvörður Vitoria de Guimaraes í Portúgal, fer ekkert sérstaklega vel af stað eftir hlé í deildinni en hann gerði slæm mistök í 2-2 jafnteflinu gegn Sporting Lisbon í kvöld.
Andraz Sporar kom Sporting yfir í leiknum eftir langa sendingu frá Marcos Acuna en Jesus komst inn í sendinguna og ætlaði að taka boltann á bringuna. Það gekk eitthvað brösulega fyrir sig og endaði boltinn hjá Sporar sem skoraði.
Í seinna markinu fékk Sporar sendingu inn fyrir vörn Sporting og fór þá Jesus í skógarhlaup en mistókst að hreinsa frá og nýtti Sporar sér það og skoraði.
Marcus Edwards bjargaði Jesus þó með jöfnunarmarki tuttugu mínútum fyrir leikslok og lokatölur 2-2.
Hægt er að sjá bæði mörkin hér fyrir neðan.
Sjáð slæm mistök hjá markverði Vitoria
Sjáðu seinna markið
Athugasemdir