Fotbolti.net
06.10.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Spilaði þrjá leiki á fjórum dögum með Argentínu og Boca

Spilaði þrjá leiki á fjórum dögum með Argentínu og Boca
Canon

Mynd: EPA

Táningurinn Leonel Flores er að spila undir gríðarlega miklu leikjaálagi þessa dagana og afrekaði það að spila þrjá leiki á fjórum dögum.
Flores er aðeins 19 ára gamall en er orðinn mikilvægur partur af sterku liði Boca Juniors í argentínska boltanum, auk þess að vera búinn að spila sína fyrstu A-landsleiki fyrir Argentínu.

1. október kom Flores við sögu í sínum fyrsta leik með A-landsliðinu. Hann lék síðustu mínúturnar í 4-0 sigri í æfingalandsleik gegn Bólivíu.

3. október var hann svo í leikmannahópi Boca Juniors og kom inn af bekknum í síðari hálfleik, fullur sjálfstrausts eftir fyrsta A-landsleikinn. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði tvennu í 3-0 sigri og er Boca Juniors í þriðja sæti, með 20 stig eftir 11 umferðir.

Degi síðar, 4. október, var Flores svo aftur mættur með argentínska landsliðinu. Hann sat á bekknum fyrri hálfleikinn í æfingaleik gegn U23 liði Búrkína Fasó og fékk að spila seinni hálfleikinn. Lokatölur urðu 7-0 fyrir Argentínu.

Flores afrekaði þannig að koma við sögu í þremur leikjum á fjórum dögum, með tveimur mismunandi liðum.
Spilaði þrjá leiki á fjórum dögum með Argentínu og Boca
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.