Fotbolti.net
06.10.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

U21 í dag - Veðbankar búast við öruggum íslenskum sigri í Þórshöfn

U21 í dag - Veðbankar búast við öruggum íslenskum sigri í Þórshöfn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Það er mikið fjör framundan í undankeppni fyrir EM U21 árs landsliða þegar lokaumferðin fer fram í dag.

Ísland er þar í eldlínunni á útivelli gegn frændum okkar í Færeyjum og eiga Strákarnir okkar góða möguleika á að tryggja sér sæti í umspili um sæti á lokamóti EM.

Ísland þarf að sigra Færeyinga og treysta um leið að ógnarsterkt lið Frakklands tapi ekki á heimavelli gegn Svisslendingum. Gangi þetta upp tryggja strákarnir sér spennandi umspilsleik.

Frakkland er búið að vinna riðilinn, með 23 stig eftir 9 umferðir - sex stigum fyrir ofan Svisslendinga sem eiga 17 stig í öðru sætinu.

Ísland er í þriðja sæti með 15 stig, þremur stigum fyrir ofan Færeyinga sem unnu fyrri leikinn gegn Íslandi í fyrstu umferð undankeppninnar.

U21 strákarnir fara inn í leikinn fullir sjálfstrausts eftir stórsigur gegn Sviss í síðustu umferð, þar sem lokatölur urðu 5-1.
U21 liðið er lent í Færeyjum
TENGT EFNI

U21 liðið er lent í Færeyjum

Lestu um leikinn: Færeyjar U21 0 - 0 Ísland U21
Veðbankar búast við öruggum sigri Íslands í Þórshöfn í dag. Epicbet er með stuðulinn 1,34 á íslenskan sigur en 8,10 á að Færeyjar sigri. Jafntefli er með stuðulinn 5,04.

Fleiri leikir eru á dagskrá í dag þar sem öll helstu U21 landslið Evrópu mæta til leiks. Allir leikir hefjast ýmist klukkan 16:30 eða 17:00.

Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
17:00 Færeyjar-Iceland (Tórsvöllur)
17:00 Frakkland-Sviss (Stade de la Source)
17:00 Lúxemborg-Eistland
U21 í dag - Veðbankar búast við öruggum íslenskum sigri í Þórshöfn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.