Fotbolti.net
05.10.26 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson

Bruno og Cancelo vilja fá Ronaldo aftur í landsliðið

Bruno og Cancelo vilja fá Ronaldo aftur í landsliðið
Canon

Mynd: EPA

Bruno Fernandes og Joao Cancelo, landsliðsfélagar Cristiano Ronaldo í portúgalska landsliðinu, vonast til að goðsögnin snúi aftur til leiks með liðinu í næsta landsleikjaglugga.
Jorge Jesus: Ronaldo ræður hvað hann gerir
TENGT EFNI

Jorge Jesus: Ronaldo ræður hvað hann gerir

Ronaldo fór í fýlu og yfirgaf landsliðsbúðir Portúgal eftir að hafa verið ósáttur með Jorge Jesus landsliðsþjálfara. Þeir virðast þó vera að sættast og eru dyrnar opnar fyrir endurkomu Ronaldo í landsliðið.

„Ég vona að Cristiano hætti ekki að spila með landsliðinu út af þessu. Hann er stærsta goðsögn í fótboltasögu Portúgal og á skilið að vera kvaddur á sínum eigin forsendum, ekki með þessum hætti," sagði Bruno Fernandes og tók Cancelo undir.

„Cristiano Ronaldo er fyrirliðinn okkar og stærsta tákn i sögu landsliðsins. Hann er besti fótboltamaður sögunnar og allir vita hvað hann hefur gefið Portúgal í gegnum tíðina," sagði Cancelo.

„Ég hef trú á að þetta endi allt vel. Við viljum að þetta mál sé leyst í rólegheitum og að Cristiano sé sýnd sú virðing sem hann á skilið."
Bruno og Cancelo vilja fá Ronaldo aftur í landsliðið
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.