Sir Alex Ferguson hefur verið myndaður meðal almennings í fyrsta sinn síðan hann var fluttur á sjúkrahús í mars.
Aðdáandi fékk mynd af sér með honum á veitingastað í úthverfi Manchester.
Sir Alex, sem er 84 ára, virðist ferskur og hress.
Aðdáandi fékk mynd af sér með honum á veitingastað í úthverfi Manchester.
Sir Alex, sem er 84 ára, virðist ferskur og hress.
Aðdáendur hans urðu áhyggjufullir þegar fréttir bárust af því að hann hefði farið á sjúkrahús eftir að hafa orðið slappur á Old Trafford, fyrir 3-2 sigurleikinn gegn Liverpool í mars.
Hann fór á sjúkrahúsið til öryggis og fór síðan heim að jafna sig. Það er gaman að sjá að hann er kominn aftur í góðan gír.
Aðdáandinn sem fékk myndina með honum, Vimal Devassy, sagðist hafa verið skjálfandi þegar hann hitti goðsögnina. Devassy er mikill aðdáandi Cristiano Ronaldo og segir við The Sun að honum hafi þótt magnað að hitta einstakling sem hafði svo mikil áhrif á feril Ronaldo.
Allir fótboltaunnendur vita hver Sir Alex Ferguson er eftir stjórnartíð hans hjá Man Utd enda var hann við stjórnvölinn í 26 ár og náði ótrúlegum árangri með félagið.



