Fotbolti.net
04.06.26 - 14:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sölvi Snær kominn með leikheimild hjá Grindavík

Sölvi Snær kominn með leikheimild hjá Grindavík
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Sölvi Snær Ásgeirsson fékk í vikunni leikheimild með Grindavík en hann er mættur aftur til landsins eftir lánsdvöl hjá LASK í Austurríki. Þetta staðfestir Sigurður Óli Þórleifsson, formaður fótboltadeildar Grindavíkur, í samtali við Fótbolta.net.

Sölvi fór vel af stað í Austurríki og lék æfingaleik með aðalliði LASK síðasta sumar en varð svo fyrir meiðslum sem settu stórt strik í reikninginn í vetur og náði einungis að spila nokkra leiki með varaliðinu sem spilar í þriðju efstu deild Austurríkis.

LASK var með kauprétt í lánssamningnum en vegna meiðslanna ákvað austurríska félagið að nýta ekki þann möguleika.

Talsverðan tíma tók að fá leikheimildina, Sölvi varð átján ára í lok maí og tók félagaskiptaferlið nokkrar vikur.
Sölvi er varnarmaður sem fæddur árið 2008, hann á að baki 13 leiki fyrir unglingalandsliðin og þar af er einn fyrir U19.

Hann er kominn með leikheimild og gæti spilað með 2. flokki um helgina. Næsti leikur meistaraflokks Grindavikur er svo gegn Fylki þann 17. júní.

Sölvi er samningsbundinn Grindavík út þetta ár. Hann fór árið 2023 á reynslu til Lyngby og fyrir rúmu ári síðan var hann í heimsókn hjá Real Valladolid á Spáni.
Sölvi Snær kominn með leikheimild hjá Grindavík
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeild karla

#LiðLmunStig
1Afturelding22+3245
2Þróttur R.22+2543
3Fylkir22+1340
4HK22+1238
5Njarðvík22+938
6Leiknir R.22+128
7ÍR22-628
8Grótta22-727
9Vestri22-1327
10Völsungur22-1226
11Grindavík22-1025
12Ægir22-449
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.