Grótta hefur skorað sitt fyrsta mark í sinni stuttu sögu í efstu deild á Íslandi. Fjórði leikur félagsins í efstu deild fer í dag fram á Vivaldi-vellinum, heimavelli liðsins, og eru HK gestirnir á Seltjarnarnesi.
Pétur Theódór Árnason, framherjinn stóri og stæðilegi, skoraði fyrsta mark Gróttu strax á annarri mínútu.
„GRÓTTA ER KOMIN Á BLAÐ!!!! Pétur Theódór Árnason er fyrsti markaskorari Gróttu í efstu deild! Geggjaður bolti fastur niðri fyrir markið frá Axel Sigurðssyni og Pétur kemur á ferðinni á fjærstöng og potar honum inn!" skrifar Stefán Marteinn Ólafsson í beinni textalýsingu frá leiknum.
Nú eru um tíu mínútur liðnar af leiknum og staðan er 1-0 fyrir Gróttu. Kristján Óli Sigurðsson, sparkspekingur, setti skemmtilega færslu á Twitter í kjölfar marksins sem má sjá hér að neðan.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu

Japla á þessum Gróttusokk fram að Verslunarmannahelgi.
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) July 4, 2020
Athugasemdir