Fotbolti.net
11.09.26 - 22:28
Magnús Atlason

Anton Logi: Tíminn leið ekki

Auglýsing
Anton Logi Lúðvíksson, leikmaður Breiðabliks.

Anton Logi Lúðvíksson, leikmaður Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Breiðablik eru bikarmeistarar eftir 2-1 háspennusigur á Aftureldingu. Fótbolti.net náði tali af Antoni Loga Lúðvíkssyni, leikmanni Breiðabliks, eftir leik.
Lestu um leikinn: Afturelding 1 - 2 Breiðablik
"Hvernig er tilfinningin?"

"Bara geðveik. Það er sjaldan sem maður vinnur titla í þessari íþrótt. Að vinna titil er bara mjög stórt fyrir félagið, fyrir okkur sem hóp og bara, þetta gæti eiginlega ekki verið betra."

"Varstu áhyggjufullur undir lokin?"

Já, þetta var óþægilegt. Maður er líka farinn út af, maður var alveg búinn á því að geta ekki haft áhrif á þetta og þurfa að horfa á þetta af bekknum. Tíminn leið ekki."

"Hvernig verður fagnað í kvöld?"

"Nú væri ég til í að fara að taka þennan bikar og klára þessa myndatöku með fjölskyldunni. Svo er bara farið niður í Smára og haft geggjað kvöld saman."

Horfðu á viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.