Fotbolti.net
11.09.26 - 18:38
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Keli brattur: Ég ætla ekki að vera lítill í mér gagnvart Afturelding

Auglýsing
Keli brattur: Ég ætla ekki að vera lítill í mér gagnvart Afturelding
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn

Framundan er bikarúrslitaleikur Breiðabliks og Aftureldingar, leikurinn byrjar kl: 19:00. Fotbolti.net náði tali á Hrafnkelli Frey Ágústssyni, stuðningsmanni Breiðabliks.

Lestu um leikinn: Afturelding 0 - 1 Breiðablik

„Mér líður vel, ég er nokkuð brattur fyrir þessu. Frábrigðum öðrum blikum þá er ég mjög jákvæður. Ég ætla ekki að vera lítill í mér gagnvart Afturelding."

„Mér finnst leikmenn Breiðabliks vera betri en leikmenn Aftureldingar, ég held að þessir stórir póstar stigi upp í dag."

„Ég var hræddur um það þegar ég heyrði að þetta væri í september að það væri kalt. Eins og um árið þegar við spiluðum við Stjörnuna, ég veit það að margir fóru í framlengingu þegar það var orðið svo kalt."

„Ég sé að Hilmar Jökull er mættur frá Tenerife, Eysteinn Þorri er mættur frá Kaupmannahöfn. Ég trúi ekki öðru að það muni heyrast vel í Kópacabana og öllum í kring."

„Við unnum þetta 2009, fyrsti titill í sögunni karlamegin. Ég veit að Höskuldur er búin að tala um það að hann sé búin að bíða eftir þessu helvíti lengi. Hann var ekki til staðar 2018, þegar hann var að spila með Halmstad minnir mig. Margir í þessu liði hafa farið í stóra leiki í deildinni en ekki spilað þennan bikarúrslitaleik sem allir vilja spila einhvern tímann á ferlinum."

Hvaða ungur bliki eiga stuðningsmenn að fylgjast með?

„Ég myndi segja Jónatan Guðni Árnason, hann er vissulega Fjölnismaður en hann er orðinn bliki í dag, hann er ungur. Mér finnst hann vera þannig týpa að hann er með frekar gott sjálfstraust, ég held að hann stigi upp í svona leik og keyrir á menn. Kemur ekki á óvart að hann myndi setja hann."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

Búinn að bíða eftir þessum leik í langan tíma.

Búinn að bíða eftir þessum leik í langan tíma.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keli brattur: Ég ætla ekki að vera lítill í mér gagnvart Afturelding
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.