Fotbolti.net
11.09.26 - 19:57
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Breiðablik leiðir í hálfleik í úrslitaleik Mjólkurbikarsins

Breiðablik leiðir í hálfleik í úrslitaleik Mjólkurbikarsins
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mjólkurbikarinn

Kl 19:00 byrjaði úrslitaleikur Mjólkurbikarsins, Afturelding spilar á móti Breiðablik á Laugardalsvelli. Hálfleikur er kominn og er Breiðablik að leiða leikinn 2-0. Bæði mörkin komu úr hornspyrnum.

Lestu um leikinn: Afturelding 0 - 2 Breiðablik

Fyrirliði Breiðabliks, Höskuldur Gunnlaugsson skoraði fyrsta mark leiksins á 4. mínútu, eftir stoðsendingu frá Óla Val Ómarssyn.

„Hornspyrnan nær ekki yfir fyrsta mann en Blikar halda sókninni áfram. Óli Valur kemur svo með sendinguna á Höskuld sem gerir vel og tekur svo frábært skot niður í hægra hornið sem Arnar Daði ræður ekki við."

Kristófer Ingi Kristinnson skoraði seinna mark Breiðabliks á 40. mínútu. Davíð Þór Ingvarsson með stoðsendinguna.

„Aftur er það úr horni.

Hornspyrnan frá Höskuldi inn á teiginn. Kristófer á skallann sem fer beint í kassann á Davíð. Hann kassar hann aftur á Kristófer sem klárar fagmannlega með föstu skoti meðfram jörðinni.

Óverjandi og farið að líta ágætlega út fyrir Blika."

Breiðablik leiðir í hálfleik í úrslitaleik Mjólkurbikarsins
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.