Fotbolti.net
04.09.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Sex framlengja við nýliðana

Sex framlengja við nýliðana
Canon

Mynd: EPA

Fjórir leikmenn Hull City voru að framlengja samninga sína við félagið á dögunum.
„Mögulega ruglaðasti náungi sem ég veit um"
TENGT EFNI

„Mögulega ruglaðasti náungi sem ég veit um"

Miðvörðurinn John Egan, sem er 33 ára lærisveinn Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu, gerir tveggja ára samning með möguleika á auka ári. Egan hefur spilað 60 leiki á einu og hálfu ári í Kingston upon Hull.

Alsírski kantmaðurinn Mohamed Belloumi, 24 ára, er búinn að gera samning til 2029 með möguleika á auka ári og bætir þannig einu ári við gamla samninginn.

Miðvörðurinn Charlie Hughes gerir samskonar samning og að lokum samdi 32 ára Matt Crooks til 2028 með möguleika á auka ári.

Hull City hefur byrjað úrvalsdeildartímabilið af miklum krafti og er með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar, án þess að hafa fengið mark á sig.

Þar að auki var lykilmaðurinn Oliver McBurnie að framlengja samninginn sinn, sem og Regan Slater. Þeir semja báðir til 2029 með möguleika á auka ári.
Sex framlengja við nýliðana
Canon

Mynd: Hull City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.