04.11.26 - 09:35
Elvar Geir Magnússon
Arnór Gauti heim í FH (Staðfest)

Arnór Gauti lék með Grindavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Gauti lék með Grindavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Gauti Úlfarsson hefur gert þriggja ára samning við FH en hann kemur til félagsins frá Grindavík.
Arnór Gauti er uppalinn í FH en hefur undanfarin ár spilað með ÍR og Grindavík í Lengjudeildinni. Hann er 23 ára gamall miðvörður sem getur einnig leyst bakvarðastöðurnar.
„Við erum mjög ánægðir með að hafa náð í Arnór. Hann er fljótur og aggresívur miðvörður, hefur staðið sig vel í Lengjudeildinni undanfarin ár og tilbúinn að taka skrefið í Bestu deildina," segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH.
„Síðan er það alltaf ánægjulegt að fá FH-inga heim, Arnór með stórt FH hjarta og mun hjálpa okkur mikið í þeirri baráttu sem framundan er hjá okkur."
Arnór Gauti var í liði Grindavíkur sem féll úr Lengjudeildinni í sumar. FH hafnaði í níunda sæti Bestu deildarinnar í sumar.