Fotbolti.net
04.11.26 - 09:51
Elvar Geir Magnússon

Táningur Man Utd fær lof fyrir öfluga innkomu

Shea Lacey.

Shea Lacey.

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Michael Carrick, stjóri Manchester United, segist vera afar hrifinn af Shea Lacey. Carrick hefur ekki mikið notað þennan 19 ára gamla sóknarsinnaða leikmann á þessu tímabili.

Fyrir leikinn gegn Roma í Meistaradeildinni í gærkvöldi, þar sem United sneri taflinu við, hafði Lacey aðeins komið fjórum sinnum inn á sem varamaður auk þess að byrja einn leik gegn Brighton í Carabao-deildabikarnum, þar sem hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir aðalliðið.

Carrick setti Lacey inn af bekknum í stað Amad Diallo þegar stundarfjórðingur var eftir af leiknum í gær. United var þá undir og leitaði örvæntingarfullt leiða til að komast aftur inn í leikinn.
Sjáðu mörkin á mögnuðu kvöldi á Old Trafford
TENGT EFNI

Sjáðu mörkin á mögnuðu kvöldi á Old Trafford

Táningurinn kom inn með miklum krafti, skapaði vandræði fyrir vörn Roma með hlaupum sínum með boltann og átti stoðsendingu í sigurmarki Matheus Cunha.

„Við erum virkilega hrifnir af honum. Hann er frábær ungur maður; hann býr yfir miklum hæfileikum og hefur mikinn metnað til að standa sig vel," segir Carrick sem hrósar Lacey ekki bara fyrir sóknarleikinn.

„Ég var líka ánægður með að sjá hann sinna varnarvinnu í hægri bakvarðarstöðunni þegar á þurfti að halda. Sem fjölhæfur fótboltamaður verður maður að geta gert slíkt. Hann hressti upp á liðið þegar hann kom inn á völlinn. Það var frábært að sjá, og hann nýtti tækifærið til fulls.“

Kasper Schmeichel, fyrrum markvörður Leicester, var sérfræðingur hjá BBC yfir leiknum og heillaðist af innkomu Lacey.

„Hann býr yfir virkilega sérstökum hæfileikum og það er mikilvægt að fara varlega með hann. Ég held að Michael Carrick sé að passa vel upp á hann," segir Schmeichel.
Táningur Man Utd fær lof fyrir öfluga innkomu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.