Fotbolti.net
04.11.26 - 22:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Haaland: Við þurfum að gefa í

Haaland: Við þurfum að gefa í
Canon

Mynd: EPA

Erling Haaland var hetja Man City þegar liðið vann 3-2 sigur á RB Leipzig í Meistaradeildinni í kvöld.

Haaland var ekki himinlifandi með frammistöðu liðsins en Leipzig náði að jafna tvisvar.
„Ég veit ekki hversu margar snertingar ég tók, ekki flestar en það sem er mikilvægast er að ég hjálpaði liðinu að vinna. Ég tel að við þurfum að gefa í, þegar við vorum 1-0 yfir þurftum við að keyra á þetta og reyna skora annað og svo þriðja. Það er það sem við þurfum að gera. Við þurfum að vinna í því," sagði Haaland.

„Við þurfum að halda boltanum, hvenær við höldum honum og hvenær við keyrum á þetta, vinna saman sóknar og varnarlega. Við getum alltaf gert betur og það er alltaf nýtt tækifæri. Nýr leikur eftir þrjá daga sem er yndislegt."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.