Fotbolti.net
04.12.18 - 16:01
Magnús Már Einarsson

Helga Guðrún í Stjörnuna (Staðfest)

Helga Guðrún í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Sóknarmaðurinn Helga Guðrún Kristinsdóttir hefur skrifað undir samning hjá Stjörnunni.
Helga kemur til Stjörnunnar frá uppeldisfélagi sínu Grindavík.

Hin 21 árs gamla Helga skoraði tvö mörk í sautján leikjum þegar Grindavík féll úr Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.

Samtals hefur Helga skorað 21 mark í 94 deildar og bikarleikjum á ferli sínum með Grindavík.

Hún fer sömu leið og María Sól Jakobsdóttir sem kom til Stjörnunnar frá Grindavík fyrr í vetur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.