Fotbolti.net
15.10.26 - 21:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sambandsdeildin: Tvö rauð í endurkomusigri Brann

Sambandsdeildin: Tvö rauð í endurkomusigri Brann
Canon

Mynd: EPA

Kristall Máni Ingason, Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon voru allir í byrjunarliði Brann þegar liðið lagði Lincoln Red Imps í viðburðaríkum leik.

Neraysho Kasanwirjo, varnarmaður Brann, fékk að líta rauða spjaldið í fyrri hálfleik en staðan var enn markalaus eftir 45 mínútur.
Lincoln Red Imps komst yfir en Tomas Cardozo, varnarmaður liðsins fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt stuttu síðar. Niklas Castro jafnaði metin fyrir Brann og skoraði sigurmarkið þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma.

Viktor Bjarki Daðason var í byrjunarliði FCK en Rúnar Alex Rúnarsson og Gunnar Orri Olsen voru ónotaðir varamenn í sigri á Braga.

Viktor fékk úr litlu að moða í fyrri hálfleik. Mohamed Elyounoussi kom FCK yfir snemma í seinni hálfleik. Andreas Cornelius kom inn á fyrir Viktor Bjarka eftir klukkutíma leik.

Hann innsiglaði sigur FCK með því að skora tvö mörk undir lokin. Kristian Nökkvi Hlynsson kom inn á sem varamaður þegar Twente lagði Thun af velli.

Þá var Tómas Bent Magnússon í banni þegar Hearts gerði jafntefli gegn Nordsjælland.

Georginio Rutter var allt í öllu þegar Briighton lagði Kauno Zalgiris en hann skoraði tvennu og lagði upp eitt. Þá gerði Atalanta út um leikinn gegn Pafos í fyrri hálfleik með þremur mörkum.

Öll úrslit kvöldsins
Atalanta 3 - 1 Pafos FC
1-0 Eljif Elmas ('1 )
2-0 Giacomo Raspadori ('18 , víti)
3-0 Gianluca Scamacca ('44 )
3-1 Biel ('88 )

Brighton 4 - 0 Kauno Zalgiris
1-0 Georginio Rutter ('41 )
2-0 Jack Hinshelwood ('45 )
3-0 Georginio Rutter ('53 )
4-0 Matt O'Riley ('67 )

FC Kobenhavn 3 - 0 Braga
1-0 Mohamed Elyounoussi ('49 )
2-0 Andreas Cornelius ('79 )
3-0 Andreas Cornelius ('86 )

Twente 1 - 0 Thun
1-0 Ramiz Zerrouki ('65 )
Rautt spjald: Patrik Kristal, Thun ('60)

Hearts 1 - 1 FC Nordsjaelland
1-0 Oisin Mcentee ('33 )
1-1 Nicklas Rojkjaer ('86 )

Freiburg 3 - 2 Jablonec
1-0 Vincenzo Grifo ('15 )
1-1 Antonin Rusek ('28 )
1-2 Dusan Pavlovic ('53 , sjálfsmark)
2-2 Maximilian Eggestein ('65 )
2-3 Garang Kuol ('90 )

SK Brann 2 - 1 Lincoln
0-1 Kike Gomez ('59 )
1-1 Niklas Castro ('64 )
2-1 Niklas Castro ('81 )
Rautt spjald: ,Neraysho Kasanwirjo, SK Brann ('23)Gabriel Cardozo, Lincoln ('61)

Sint-Truiden 2 - 0 Iberia 1999
1-0 Robert-Jan Vanwesemael ('11 )
2-0 Ilias Sebaoui ('88 )
Georginio Rutter

Georginio Rutter

Canon

Mynd: EPA

FCK fagnaði sigri

FCK fagnaði sigri

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.