Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 05. febrúar 2021 07:10
Victor Pálsson
Dortmund sagt vilja Onana
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund er að skoða það að fá markvörðinn Andre Onana frá Ajax næsta sumar.

Frá þessu greinir Goal.com en Onana verður samningslaus hjá Ajax í Hollandi næsta sumar.

Félagið gæti þurft að selja í sumar en annars gæti þessi öflugi markvörður farið frítt til annars félags árið 2022.

Onana hefur verið orðaður við ýmis lið síðustu mánuði og má nefna bæði Barcelona og Chelsea.

Roman Burki er aðalmarkvörður Dortmund en einhver óanægja ku vera með hans frammistöðu á tímabilinu.

Onana myndi því að öllum líkindum taka við sem aðalmarkvörður í Dortmund.

Uppfært 10:30 Onana hefur verið dæmdur í eins árs keppnisbann fyrir að falla á lyfjaprófi.
Athugasemdir
banner
banner
banner