Fotbolti.net
05.10.26 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Cattermole rekinn eftir áhugavert viðtal

Cattermole, hér til hægri, í leik með Sunderland.

Cattermole, hér til hægri, í leik með Sunderland.

Canon

Mynd:

Lee Cattermole hefur verið rekinn úr starfi sem stjóri Gateshead eftir aðeins fjóra mánuði í starfi.
Cattermole tók við Gateshead í júní og þetta var hans fyrsta starf sem aðalþjálfari. Byrjunin hefur verið afar erfið en liðið hefur aðeins unnið einn af fyrstu tólf deildarleikjum sínum og situr á botni National League, sem er efsta utandeildin á Englandi.

Eftir 2-1 tap gegn Worthing á laugardag lét Cattermole í sér heyra um vandræði innan félagsins og gaf í skyn að ekki væru allir innan Gateshead að vinna að sama markmiði.

„Þetta félag er hvergi nærri nógu samstíga. Það hefur verið þannig allan tímann sem ég hef verið hér,“ sagði Cattermole hreinskilinn.

Vandræðin hjá Gateshead eru ekki aðeins innan vallar. Félagið gat ekki greitt leikmönnum og starfsfólki laun fyrir september eftir að Mark Nellist, einn stjórnenda félagsins, sagði af sér og hætti fjárhagslegum stuðningi sínum.

Cattermole, sem spilaði sjálfur lengi í ensku úrvalsdeildinni, hefur nú verið látinn taka pokann sinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.