Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 05. febrúar 2021 10:33
Magnús Már Einarsson
Onana í eins árs keppnisbann
Mynd: Getty Images
Andre Onana, markvörður Ajax, hefur verið dæmdur í eins árs keppnisbann hjá UEFA eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.

Onana, sem er lykilmaður í liði Ajax spilar því ekkert með liðinu fyrr en í febrúar á næsta ári.

Ajax segir í yfirlýsingu á heimasíðu sinni að Onana hafi óvart tekið inn lyf sem kona hans átti og því hafi hann fallið á lyfjaprófinu.

„Að morgni 30. október leið Onana illa. Hann vildi taka töflu til að minnka verkina. Án þess að vita af því tók hann Lasimac, lyf sem hafði verið skrifað á konuna hans," sagði á heimasíðu Ajax í dag.

Ajax hefur lýst yfir vonbrigðum með lengdina á banninu þar sem Onana hafi ekki ætlað að svindla á lyfjareglum.
Athugasemdir
banner
banner
banner