Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 05. febrúar 2023 20:03
Ívan Guðjón Baldursson
Ekki skorað á Tottenham Stadium eftir 84 marktilraunir
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Manchester City heimsótti Tottenham á Tottenham Hotspur Stadium í fimmta sinn í sögunni í dag.

Eins og vanalega þá gekk lærisveinum Pep Guardiola illa gegn Tottenham og enduðu þeir á að tapa leiknum 1-0.

Man City hefur þar með tapað öllum fimm leikjum sínum á Tottenham Hotspur Stadium án þess að nokkurn tímann takast að skora mark - þrátt fyrir 84 marktilraunir.

Þetta byrjaði 2019 þegar leikvangurinn var nýtilbúinn og Tottenham lagði Man City að velli 1-0 í Meistaradeild Evrópu. Næstu tveir leikir fóru 2-0 fyrir Tottenham í úrvalsdeildinni og næstu tveir hafa svo farið 1-0.


Athugasemdir
banner
banner
banner